Pétur, Júlíus og Hafsteinn.Sigurbjörg Sólveig Valdimarsdóttir
Góðan daginn. Ég er hér sest við tölvuna eftir mjög áhugaverðan dag, sem reyndar er ekki búinn eins og glöggir vita. Vaknaði spræk klukkan 8, eða kannski ekki svo spræk þar sem ég nennti ekki uppúr rúminu fyrr en kl 9. Át og dreif mig í vinnuna. Ekki langt að fara, heldur var og er vinnan mín í dag að taka eldhúsið í GEGN takk fyrir.Tók til og druslaðist síðan upp í MH að sækja um skólavist þar. Jú og fékk einstaklega skemmtilegar fréttir
Fór síðan líka í starfsviðtal í sveinsbakaríi áðan. Ég er komin með vinnu þar sem sagt
Helgin mín var annars bara voða fín
Jæja vá, ég blogga alltaf svo langt. Er að spá í að fara koma mér úr þessari fýlu yfir MH og fara taka tiiiiil. Skelli mér svo til hennar Sóleyjar minnar í kvöld þar sem hún var að koma frá úglandinu
Heyriði næs, takk fyrir mig
Didda sem er ekki að fara í MH
Didda driverSigurbjörg Sólveig Valdimarsdóttir
Já blogg númer 2 barasta. Sæl sæl, í dag já í dag þá fór ég og pabbi leifði mér að keyraNóg um mig og bíla. Meira um mig og ofnæmi. Þar sem pabbi hafði mig og systurnar tvær í bílnum datt honum ekki í hug að hleypa okkur heim fyrr en hann hafði tekið okkur í einn góðann göngutúr. Jú og það í grasgrænum skógi. Og pabbi litli skildi ekki þegar ég sagðist hafa gleymt að taka ofnæmislyfin mín og dró okkur um allan skóginn þar til ég var með rauð og lekandi augu og öll að klóra mér... þá fór pabbi að leita af leiðinni til baka. Sem tók hálftíma. Þegar heim var komið fengum við systurnar að velja um hvernig fisk við vildum og völdum við fiskibollur.
Síðan lá leið mín til míns heittelskaða Henrikó. Ætluðum að skella okkur í bíó en enduðum á því að nota Gunnar driver til að skutla okkur að sækja pitsu og spólu. Átum svo og horfðum á Into the blue sem var fín mynd myndi ég segja. Svo skoðuðum við myndir af Henriki þegar hann var lítill. Sem var alveg helvíti kjút. Henrik pósandi í bleikum regnfötum eða alsber með skeið haha.
Held þetta sé bara orðið meira en gott. Alltof langt blogg um ekki neitt.
Svo ég segi bara góða nótt.
Kær kveðja Didda driver
Didda atvinnulausi framtíđarbakarinnSigurbjörg Sólveig Valdimarsdóttir
Nei vá nei vá nei vá
strange woman.. og rífur sturtuna af litla miðjubarninu og segist þurfa að vera á undan svo ég auðvitað læt undan. Já gaman að segja frá því þá fór móðir mín til talnaspekings sem sagði henni að dóttir hennar yrði ólétt í júní, sem sagt Sigurbjörgin eða Nínan. Haha sé fyrir mér litla Diddu
Haha nei mig langar ekki í barn strax takk, annars væri ég helvíti til í að Nína myndi eignast eitt. Djöfull væri það gamanÉg á eftir að vera alveg hörkubloggari.
Ekkert meira að frétta af mér, yfir og út
Sigurbjörg Sólveig Valdimarsdóttir